top of page

Varnakerfið - GlÚatþíón

Afeitrunarmeistarinn og ofurstuðningur við ónæmiskerfið,  glútaþíón

gdh.png

Nauðsynlegt er að auka magn glútaþíóns í líkamanum ætli fólk að halda í æskuþróttinn og góða heilsu. Hátt hlutfall glútaþíóns í blóði segir fyrir um góða heilsu og langlífi, en lágt hlutfall um sjúkdóma og dauða.    
Heimild: STOP AGING – By Jean Carper.


Glútaþíón er m.a.
•    Móður andoxunarefni líkamans
•    Styður við og eflir ónæmiskerfið
•    Afeitrunarmeistari líkamans

Glútaþíón minnkar með aldrinum

gsh decline.jpg

Frumur líkamans framleiða eigin glútaþíon, mest framleiðsla á sér stað í lifrinni.

Slæmu fréttirnar eru að með aldrinum, lélegu mataræði, mengun,  eiturefnum, lyfjum, streitu og áföllum dregur úr glútaþíon framleiðslu líkamans. 

Á myndinni má sjá að aldurinn hefur mikið með framleiðslumagn glútaþíóns að gera.

Y Age Glutathione  breytir þessu strax á fyrsta degi  -  Vísinda afrek!

Ef einhvern tímann er hægt að tala um heilsubyltingu eða vísinda afverk þá er það þegar LifeWave tókst að búa til glútaþíón plásturinn sem eykur glútaþíón framleiðsluna hjá einstaklingum að meðaltali um 300% á innan við 24klst. 

Á myndinni má sjá niðurstöðu mælinga í blóði heilbrigðra fullorðinna einstaklinga. Hópurinn fór að meðaltali úr 2000 micro mól/l  í yfir 7000 micro mól/l á einum sjólarhring.  það má lesa nánar um rannsóknina 
hér

ATH:  það hefur afskaplega lítil áhrif að borða glutathione, það hafa margar rannsóknir staðfest.   Mundu að Y Age  Glutathione plásturinn örvar líkaman til að framleiða meira, þar liggur munurinn.   Líklega væru allir nú þegar að borða glútaþíón pillur ef þær virkuðu jafn vel og Y Age glútaþíón plásturinn.

gsh 300.jpg

Læknirinn Mark Hyman fjallar um mikilvægustu sameind líkamans sem fáir þekkja

(Úrdráttur úr umfjöllun læknissins Mark Hyman) 
Það er mikilvægasta sameindin sem þú þarft til að vera heilbrigður einstaklingur og koma í veg fyrir sjúkdóma og ótímabæra hrörnun - en þú hefur sennilega aldrei heyrt um það!

 

Það er leyndarmálið til að koma í veg fyrir ótímabæra öldrun, krabbamein, hjartasjúkdóma, heilabilun og margt fleira. 
Og það er nauðsynlegt að meðhöndla allt frá einhverfu til Alzheimers-sjúkdómsins. 
Það eru fleiri en 120.000 ritrýndar vísindagreinar um það - en læknirinn veit ekki hvernig takast á við þennan farald sem er skortur á þessari mikilvægu og lífgefandi sameind.  
Hvað er það? Við erum að tala um
           
a) móður allra andoxunarefna 
            b) aðal afeitrarann 
            c) meistara ónæmiskerfisins stundum kallað fæðan fyrir ónæmiskerfið
.  

Gjörðu svo vel að hlusta á allt erindið, hér er örugglega eitthvað sem þú vilt ekki missa af.

Sara og Heather ræða um eiginleika glutathione plásturssins

Hvað er glútaþíón?

Glútaþíon er nauðsynlegasta heilsuvernd líkamans og er styrkur við áhrifum öldrunar. Glútaþíon er aðal andoxunarefnið, ónæmishvatinn og afeitrarinn. Þetta litla prótín, sem líkaminn framleiðir sjálfur á náttúrulegan hátt, inniheldur þessi þrjú nauðsynlegu varnarefni; í raun er líf þitt undir glútaþíoni komið. 
 
Ef þú hefðir það ekki þá mundu frumurnar grotna niður úr taumlausri oxun eða tæringu; líkami þinn hefði litla mótstöðu gegn bakteríum, veirum og krabbameini og lifrin þín myndi skreppa saman vegna mikils samansafns ýmissa eiturefna. 
 
Sú var tíð að einungis vísindamenn höfðu heyrt um kólesteról og vítamín, en í dag vita allir hvaða efni það eru. Nú er komið að glútaþíoninu. Á síðastliðnum fimm árum hafa yfir tuttugu og fimm þúsund læknisfræðilegar greinar um þetta efni verið gefnar út og þessi vísindalegi skilningur er snarlega að verða þekktur hjá öllum almenningi. 
 
Sérhver fruma líkamans er ábyrg fyrir eigin glútaþíoni og verður að hafa nauðsynlegt hráefni til að framleiða það. Ávallt er mikil eftirspurn eftir glútaþíoni og það er nýtt í hvert skipti og við tökumst á við álag, veikindi, stress, þreytu og jafnvel æfingar. Sumar vel þekktar ástæður vegna skorts á glútaþíoni eru: fíkniefni, slæmt mataræði, geislamengun, álagssýking, sár, bruni, sálrænt tjón. 
 
AF HVERJU GLÚTAÞÍON ER NAUÐSYNLEGT HEILSUNNI Þrjú meginhlutverk glútaþíons í líkamanum eru vegna–andoxunarefna, ónæmishvata og afeitrunar- þrír þýðingarmiklir ferlar sem ganga fyrir glútaþíoni. 
 
Aðal andoxunarefnið Síðastliðin þrjátíu ár hefur rannsóknafólk kannað gildi andoxunarefna fyrir góða heilsu. Sindurefnum hefur verið bendlað við alls kyns sjúkdóma, þ.á.m. hjartasjúkdóma, krabbamein, sykursýki og sjálfa öldrunina. Velþekkt og mikið notuð andoxunarefni eins og C vítamín og seleníum vega upp á móti sindurefnum. Þau andoxunarefni myndast eðlilega í náttúrunni en ekki í líkamanum – þau verða að koma inn sem hluti af næringarríku mataræði. 
 
Að því gefnu hve þýðingarmikið hlutverk andoxunarefna er á góða heilsu, þá er það ekki undarlegt að líkaminn sjálfur framleiði sín eigin andoxunarefni. Það mikilvægasta þeirra er glútaþíonið. Vegna þess að öll önnur andoxunarefni eru uppá glútaþíonið komin til að virka rétt, þá kalla vísindamenn það "aðal andoxunarefnið". 
 
Fæða fyrir ónæmiskerfið Hlutverk ónæmiskerfisins er að bera kennsl á og ráðast á sýkla og aðra aðskotahluti, þar með taldar krabbameinsfrumur. Líkami með nóg af glútaþíoni berst gegn þessari ógn, auðveldar, með því að neita þeim flestum um fótfestu og með því að mæta hinum fáu sem komast í gegn með bættu ónæmiskerfi. Hækkuð glútaþíonmörk gera líkamnum kleift að framleiða meira af hvítum blóðkornum-hinni mikilvægustu varnarlínu ónæmiskerfisins. Glútaþíon leikur aðalhlutverk í starfi þessara ónæmisfruma. 
 
Dr. Gustavo Nounous, sérfræðingur um glútaþíon segir, "sá þáttur sem ræður úrslitum í réttri starfsemi hvítu blóðkornanna (eitilkorna) er að glútaþíon sé til staðar". Sett fram á einfaldan hátt: glútaþíon er "fæðan" fyrir ónæmiskerfið. 
 
Nátturuleg afeitrun Hvort sem við vitum það eða ekki þá erum við stöðugt að anda að okkur og láta ofan í okkur náttúruleg-og gerfi eiturefni. Þau eru óumflýjanleg á þessum síðustu tímum, bæði í hinum menguðu borgum sem og í hinni skipulögðu fæðu og matarbirgðum. Þegar líkaminn er við góða heilsu og hefur þá næringu sem hann þarfnast þá vinnur hann stöðugt við að halda eiturefnum úti og við að verja sig, en auknir skammtar af umhverfismengun ganga sífellt meir á birgðir glútaþíonsins. Aðallíffæri okkar við afeitrun er lifrin – virkasta stöð glútaþíonsins. Kannanir sýna að lágt glútaþíonmagn leiðir til lélegra starfa lifrarinnar, sem veldur því að fleiri eiturefni streyma gegnum líkamann sem leiða til skemmda á einstökum frumum og líffærum. Læknar eru vanir að nota glútaþíonstuðlandi lyf til afeitrunar á sjúklingum þeirra sem hafa tekið of mikið af lyfjum. 
 
Glutaþíon við heilsu og sjúkdómum Það er álitið að glútaþíon hafi mikilvægu hlutverki að gegna við meðferð og til að fyrirbyggja hundruð sjúkdóma. Í framtíðinni verður það e.t.v. álitið eins mikilvægt fyrir heilsufarið eins og rétt mataræði, æfingar og góður lífsstíll. Klínískar rannsóknir sýna að hækkandi glútaþíon magn geti tekist á við nokkur megin heilsuvandamál okkar tíma – t.d. hjartasjúkdóma, hjartaslags og heilablóðfalls, sykursýki, hátt kólesteról, asma, reykinga, lifrarbólgu og fleiri. 
 
Glútaþíon sér líkamanum fyrir hjálpartækjum til að berjast gegn þessum ógnum á eðlilegan hátt. Fólk með góða heilsu nýtur þessa einnig að hafa nóg af glútaþíoni með því að hafa áhrifaríkari möguleika við að berjast gegn eiturefnum, smitsjúkdómum, krabbameinskynjuðum frumum og öldrunarferlinu sjálfu. 
 
Minnkandi glútaþíonstaða er einkenni öldrunar og eru sérstaklega augljós dæmi Parkinsons sjúkdómur og Alzheimer sjúkdómur. Glútaþíon er einnig mikilvægt fyrir fólk sem er vel á sig komið líkamlega. Margt íþróttafólk á heimsklassa er að uppgötva það að viðhald á góðri glútaþíonstöðu gefur þeim aukinn þrótt á keppinautana, og sem færir þeim enn meiri styrk og þol, flýtir batanum eftir áverka og meiðsli; vöðvaverkir minnka svo og þreyta, og vöðvar eflast. 
 
Glútaþíon er nauðsynlegt vegna öldrunareinkenna, einnig sem aðal andoxunarefnið, við að bæta ónæmiskerfið og til að afeitra mengunarþætti og krabbameinsvaka. Þó er ekki hægt að auka glútaþíonið með því að taka það inn, þar sem því gengur illa að komast gegnum meltingarfærin. Glútaþíonið verður að framleiðast innan frumukerfis líkamans. Þess vegna er besta leiðin til að hækka glútaþíonmagnið sú, að byggja upp samstæður sem frumurnar nota til að framleiða það sjálfar. 
(Innskot:: eða nota ljósgjafann frá LifeWave sem skilar um 300% aukningu hjá heilbrigðum einstaklingum)
 
Valdar læknistilvísanir Öldrun Það er vel þekkt, að við öldrun lækkar glútaþíonmagnið mikið. Lægra glútaþíonmagn er tengt mörgum sjúkdómum sem tengjast öldrun, svo sem: vagl eða ský á auga, Alzheimer- og Parkinson´s sjúkdómar, fituhrörnun (þ.e. þrenging stórra og meðalstórra slagæða) o.fl. Journal of Clinical Epidemiology 47: 1021-26,1994. 
 
Hlutverk andoxunarefna Andoxunarefni eru skráð og þekkt fyrir að hafa nauðsynlegt hlutverk í viðhaldi heilsunnar og að koma í veg fyrir sjúkdóma. Glútaþíon er aðal andoxunarefnið í frumum líkamans. Það að viðhalda háum glútaþíonstandard, þá hjálpar það líkamanum að virkja eigin andoxunarefni. Biochemical pharmacology8 47: 2113-2123. 1994. 
 
Taugasjúkdómar Lágt magn glútaþíons hefur verið tengt taugasjúkdómum eins og MS (Multiple Sclerosis= heila- og mænusigg, MS-sjúkdómur, sjúkdómur í miðtaugakerfi; lýsir sér í magnleysi í hreyfi- tal og sjóntruflunum), ALS (Lou Gehrig´s sjúkdómur), Alzheimer´s og Parkinsons sjúkdómum, ásamt öðrum. The Lancet 344: 796-798, l994. 
 
Krabbamein Glutaþíon leikur stórt hlutverk í að hafa hemil á krabbameinsvaldandi efnum og einnig viðheldur það eðlilegri ónæmisstöðu, og sér um sterka vörn gegn æxlum. Cancer Letters 57. 91-94, 1991. 
 
Hæfni íþróttamanna Aukið glútaþíon hjálpar til við að auka styrk og úthald. Þeir sem áhuga hafa á líkamsrækt geta bætt árangur sinn. Journal of Applied Physiology 87: 1381-1385, 1999. 
 
Eitur, mengun, geislun Glutaþíon afeitrar alls kyns mengunarvalda, krabbameinsvalda og eitur þar með talið útblástur og sígarettureyk. Það hindrar einnig skemmdir af geislun sem hlýst af eyðingu ózónlagsins. Annual Review of Biochemistry 52): 711-760. 10983. 
 
AIDS Lágt magn glútaþíons veldur því að AIDS sjúklingar eiga erfiðara með að lifa af. Mikið hefur verið skrifað um hlutverk glutaþíons vegna AIDS. Proceedings of the Natural Academy of Sciences, USA 94: 1967-72, 1997. 
 
Hjartasjúkdómar, slag og kóleseról Hækkað glútaþíonmagn berst gegn tæringu (oxun) á fitu sem berst með blóðrásinni, þar með talið kólesteról; það hindrar þróun á sýklum í slagæðunum – sem er hin undirliggjandi ástæða flestra hjartasjúkdóma- og slaga. Nutrition Review 54: 1-30. 1996. 
 
Sykursýki Sykursýkissjúklingar hafa tilhneigingu til að fá sýkingu og smit og blóðrásavandamál sem leiða til hjartasjúkdóma, lifrarbilunar og blindu. Glútaþíon verndar gegn fylgikvillum sykursýkinnar. Clinical Science 91.575-582, 1996. 
 
Lungnasjúkdómar Læknar hafa notað glútaþíonhvetjandi lyf til að lækna marga lungnasjúkdóma, þar með talið, andarteppu (asma-asthma), þrálátt lungnakvef (chronic bronchitis) og lungnaþembu (emphesema). Ýmsar nýlegar lækningaaðferðir eru nú fyrir hendi vegna sígarettureykinga, lungnabandvefsmyndana og annars. American Journal of Medical Science 307.119-127, 1994. 
 
Meltingarsjúkdómar Glútaþíon verndar líkamann frá magabólgum, magasári, briskirtli og ristilbólgum ásamt sáramyndaðri ristilbólgu og Crohn´s sjúkdómi. Gut 42: 485-492, 1998. 
 
Lifrarbólga Lifrin er aðal vörugeymslan fyrir glútaþíonið. Glútaþíon skaðast í alkohóllifur á sama hátt og veirulifrarbólgu ásamt A, B og C lifrarbólgu. Hækkun á glútaþíonmagni styrkir hlutverk lifrarinnar. American Journal of Gastroenterology 91: 2569-25 73, 1996. 
 
Nýrnasjúkdómar Fólk með nýrnabilun eða himnuskiljun (dialysis) þjáist af tæringarálagi (oxidation stress) og minnkandi glútaþíonmagni. Hækkandi magn glútaþíons hjálpar til við að koma í veg fyrir blóðleysi. Nephron 61: 404-408, 1992. 
 
Þungun, mjólkurmyndun og fæðing Hlutverk glútaþíons á fóstur- og legkökuþroska er mikilvægur. Það virkar einnig í legkökunni til að afeitra mengunarvalda áður en þeir komast að hinu þroskandi barni (fóstri). Margir fylgikvillar þungunar hafa verið raktir til of lítils glútaþíons. Early Human Development 31: 167-1 74. 1994. áó 01.07.09-þýðing 

bottom of page